Hundaræktunarfélagið  Íshundar














Hundarnir okkar

Hundarnir okkar

Hanna, fædd 14. nóvember 2006, er dekurdýr fjölskyldunnar enda með afbrigðum félagslynd og skemmtilegur hundur. Á heimilinu er annar hundur, skosk-íslenskur, og köttur og sækir Hanna mikið í félagsskap þeirra beggja. Hanna hefur þegar hitt bróður sinn, Siríus, en þau eru bæði búsett á Seltjarnarnesi.



Líló er papillon stelpa hún er rosalega góður karakter og elskar að kúra 
upp í sófa hjá okkur.
Líló er orkumikil og fjörug og tekur vel á móti öllum sem koma í 
heimsókn en lætur vita ef gestir ber að garði.


þetta eru þeir Damon og Lennon. Þeir eru fæddir í janúar 2007 og koma frá bjarteyjar
ræktun. Damon (til vinstri) er svaðalegur orkubolti og fer bara í fýlu ef enginn
nennir að leika, á meðan er hægt að finna lennon einhverstaðar að leggja sig.



Þetta er Næturhimna Tiny. Hann er fæddur 25. nóvember 2004 og er undan Dalsmynnis Míu og Dalsmynnis Zorro Bonderas. Eigandi : Íris Björk Rúnarsdóttir


Þetta er Eddu Sólar Phoebe. Hún er fædd 27. febrúar 2006 og er undan Dalsmynnis Eddu Sól og Næturhimna Tiny. Eigandi : Íris Björk Rúnarsdóttir

 

Öll gögn á þessari vefsíðu eru í eigu Íshunda